Vissir þú að sykur inniheldur nauðsynleg hráefni í líf? Það þýðir samt ekki að það sé hollt að borða sælgæti. Sykur er úr einfaldri uppskrift efna sem kallast kolefni, vetni og súrefni. Næstum allt lífið á jörðinni er úr þessum þremur efnum plúr einu öðru sem kallast nitur.
Með hjálp öflugs sjónauka hafa stjörnufræðingar fundið sykur í gasi sem umlykur unga stjörnu sem er áþekk sólinni okkar. Sykur hefur áður sést í geimnum en þetta er í fyrsta sinn sem hann hefur fundist svo nálægt stjörnu á borð við sólina. (Sykurinn er í svipaðri fjarlægð frá stjörnunni og Úranus er frá sólinni okkar). Og þar sem sykur inniheldur hráefni í líf er spennandi að finna hann við stjörnu eins og sólina — kannski gæti líf þrifist á öðrum hnetti í geimnum!
Stjörnufræðingar hafa líka komist að því. að sykurinn er að færast inn að stjörnunni „Sykursameindirnar eru ekki aðeins á réttum stað til að falla á reikistjörnu, heldur stefna þær í rétta átt“ segir stjörnufræðingurinn Cécile Favre.
Taktu þátt: Hvað myndir þú skoða ef þú stjórnaðir einum öflugasta sjónauka heims? Til að fagna 50 ára afmæli sínu býður Stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli öllum að kjósa hvaða glæsilega fyrirbæri VLT sjónaukinn á að ljósmynda! Smelltu hér til að fá frekari upplýsingar.
Información adicional
Þessi Space Scoop frétt er byggð á fréttatilkynningu ESO.
Share: